Varðandi tónlistarskólagjöld fyrir skólaárið 2025-2026 þá verða 6 greiðsluseðlar sendir í heimabanka fyrir skólagjöldum. Þeir verða dagsettir fram í tímann, þrír fyrir áramót & þrír eftir áramót. Hægt verður að velja að greiða einn í einu á gjalddaga eða alla í einu, ef það hentar.

Yfirlit yfir skólagjöld má sjá hér á heimasíðu tónlistarskólans.

Varðandi frístundatyrk þá þarf að sækja um hann sem fyrst á bæjarskrifstofu Suðurnesjabæjar, helst fyrir 20. september næstkomandi. Vinsamlegast sendið tölvupóst á [email protected]. Koma þarf fram kennitala barns og forráðamanns/greiðanda.