Nú er nýtt skólaár að hefjast í Tónlistarskóla Sandgerðis.

Kennarar koma til starfa fimmtudaginn 20. ágúst, hefja undirbúning og munu verða í sambandi við nemendur/forráðamenn öðru hvoru megin við helgina og setja niður tíma í stundatöflu. Kennsla hefst svo samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 25. ágúst.

Tveir nýir kennarar bætast við nú á þessu skólaári: Smári Guðmundsson sem nýr gítarkennari og Stefán Helgi Kristinsson sem nýr píanókennari. Sveinbjörn Ólafsson gítarkennari verður í fæðingarorolfi frá 1. september til 1. desember. Haraldur Helgi Agnarsson mun leysa Sveinbjörn af í fæðingarorlofi.

Varðandi skólagjöld þá verður þeim skipt niður í sex gíróseðla fyrir fullt nám og þrjá fyrir hálft nám sem dreifast yfir skólaárið. Ef óskað er eftir að skipta í færri greiðslur endilega sendið tölvupóst á tonosand(hjá)tonosand.is.

Munið að hægt er að nýta frístundastyrk kr. 50.000 til lækkunar skólagjalda fyrir nemendur upp að 18 ára aldri. Til að nýta styrkinn vinsamlega hafið samband við bæjarskrifstofu Suðurnesjabæjar.

Hlökkum til að sjá ykkur!