Starfsfólk tónlistarskólans heimsótti tvo tónlistarskóla í Edinborg, St Mary´s Music School og City of Edinburgh Music School. Það var afskaplega vel tekið á móti okkur og voru heimsóknirnar langar og ítarlegar og mikið fræðst um hvernig tónlistarkennslu er háttað í Skotlandi.
Einnig var mikið farið á tónleika á The Jazz Bar en þar er lifandi tónlist öll kvöld. Einnig heimsóttum við miðstöð þar sem rekin eru hljóðver, æfingarými fyrir hljómsveitir, trommuverslun/leiga, kaffihús, útvarpsstöð og DJ kennsla fyrir ungt fólk. Að sjálfsögðu voru hljóðfæraverslanir grandskoðaðar og keypt eitt stykki sekkjapípa.
Fleiri myndir úr ferðinni er að finna á facebook síðu skólans: https://www.facebook.com/tonosand