Við viljum vekja athygli á að símafriður ríkir í Tónlistarskóla Sandgerðis, eins og í Sandgerðisskóla. Það nær einnig til annarra snjalltækja.
Í einstaka undantekningatilfellum eru snjalltæki leyfð ef það er í námslegum tilgangi og með leyfi kennara.
Þar sem nemendur eru á allskonar aldri í tónlistarskólanum viljum við biðja eldri og fullorðna nemendur að sýna þeim yngri gott fordæmi.