Máfurinn tónlistarsmiðja er þriggja daga námskeið fyrir börn á aldrinum 7-12 ára sem hafa áhuga á tónlist og tónsköpun. Engin fyrri tónlistarmenntun er nauðsynleg til þátttöku og smiðjan er því opin öllum áhugasömum börnum.
Þemað í smiðjunni í ár eru fuglar og náttúruvernd, og tenging þeirra við tónlist. Börnin semja tónverk innblásin af fuglum og náttúruvernd, ímynda sér hvernig er að vera fugl og fara í tónlistarleiki.
Námskeiðið er fjölbreytt, skemmtilegt og hentar vel fyrir frumlega krakka!
Skráning er opin til 21. júní í gegnum vefsíðuna: https://forms.gle/ymZK9xAM9G9MroNb7
Hægt er að nálgast meiri upplýsingar á samfélagsmiðlum, Instagram @mafurinntonlistarsmidja og Facebook síðunni Máfurinn tónlistarsmiðja https://www.facebook.com/mafurinntonlistarsmidja