Óhljóð!
Námskeið 16.-21. júní 2025
Ókeypis þátttaka, en nauðsynlegt að bóka tímanlega, takmarkað pláss.
Skemmtilegt námskeið í RAFTÓNLIST. Búðu til þitt eigið hljóðfæri!
Óhljóð! er raftónlistarsmiðja fyrir ungmenni í Suðurnesjabæ í samstarfi
við Tónlistarskólana í Suðurnesjabæ og rannsóknarstofuna iiL.
Fyrir ungt fólk á aldrinum 11-18 ára með áhuga á hljóðum og grúski.
Opið fyrir alla.
Á námskeiðinu fá nemendur að búa til sín eigin rafhljóð með tækjum og
íhlutum sem er auðvelt að setja saman.
16.júní kl 10:00-13:00 kynning, í tónlistarskólanum í Garði
17.júní ~~~ frí
18.júní kl 10:00-13:00 vinnusmiðja í tónlistarskólanum í Garði
19.júní kl 10:00-13:00 vinnusmiðja í tónlistarskólanum í Garði
20.júní kl 10:00-13:00 vinnusmiðja í tónlistarskólanum í Garði
21.júní kl 15:00-16:00 sýning í Byggðasafninu Garðskaga
Áhersla er á sköpunargleði, föndur og skemmtilega nálgun á
hljóðfærasmíðar og óhljóðagerð. Ekki er farið í tæknileg smáatriði.
Þátttakendur fá að skapa hljóð og hljóðgjafa frá grunni og öðlast
skilning út frá eigin tilraunum á því hvernig ólík hljóð verða til og
hvernig má nota einfaldar raftengingar til að búa til hljóð.
Í lok námskeiðsins verður afraksturinn sýndur og viðstöddum gefinn
kostur að prófa hljóðfærin.
Leiðbeinandi er Áki Ásgeirsson, tónskáld og raftónlistarmaður.
VERTU MEÐ! Sendu póst á [email protected] til að staðfesta þátttöku. Aðeins 12 pláss laus.
Ókeypis þátttaka.