Skemmtileg vika er framundan. Bolludagur, Sprengidagur og Öskudagur. Á öskudag er að venju engin kennsla í tónlistarskólanum en þá fer fram sameiginlegur árlegur námskeiðadagur tónlistarskólanna á Suðurnesjum, TónSuð. Kennarar allra skólanna sitja þá námskeið í líkamsbeitingu tónlistarfólks sem og námskeið í skyndihjálp.

Vetrarfrí er dagana 23. & 24. febrúar og starfsdagur 25. febrúar. Kennarar tónlistarskólans nota þessa daga til að fara í námsferð til Edinborgar og heimsækja tvo tónlistarskóla, St. Mary´s Music School og City of Edingurgh Music School. Þetta er liður í símenntunaráætlun tónlistarkennara.