Góðan dag,
Skert starfsemi Suðurnesjabæjar:
Í ljósi þess að heitt vatn er farið á Suðurnesjum þarf að grípa til lokana víða í starfsemi sveitarfélagsins og þar til varalögn kemst í gagnið.
Gera má ráð fyrir að heitt vatn haldist á a.m.k. hluta af bænum fram eftir nóttu.
Fimmtudagur 8. febrúar
· Sundlaugum hefur verið lokað
· Íþróttamiðstöðvum hefur verið lokað
· Félagsmiðstöðvar loka kl.17
· Leik- og grunnskólar ásamt tónlistarskólum starfa til kl. 16:00 að öllu óbreyttu.
· Ráðhús lokar kl. 16:00
Föstudagur 9. febrúar (og á meðan ekki er heitt vatn á sveitarfélaginu)
· Allt skólastarf í leik- og grunnskólum auk tónlistarskólum fellur niður.
· Öll íþróttamannvirki og sundlaugar verða lokuð.
· Starfsemi Velferðarsviðs verður með eftirfarandi hætti:
. Hefðbundin starfsemi í sérstöku búsetuúrræði að Lækjamótum
o Björgin í Reykjanesbæ verður lokuð – opið í Lautinni
o Hæfingarstöðin í Reykjanesbæ – verður lokuð
o Dagdvöl og félagsstarf aldraðra í Miðhúsum og í Auðarstofu – verður lokuð
o Heima- og stuðningsþjónusta verður skert en haldið verður uppi nauðsynlegri þjónustu.
· Ráðhús – verða lokuð, hægt að hringja í síma 425-3000 eða senda tölvupóst á netfangið [email protected]