Nú er lokaspretturinn hafinn á þessu skólaári í tónlistarskólanum. Tvennir vortónleikar skólans verða miðvikudaginn 13. maí kl.17:30 & fimmtudaginn 14. maí, uppstigningardag kl.10:30. Báðir tónleikarnir fara fram á sal Sandgerðisskóla.  Í síðustu kennsluvikunni, 18.-23.maí fá nemendur afhentar einkunnir og umsagnir.

Þessar síðustu vikur verður mikið æft fyrir tónleika, Garðvangur heimsóttur og leikið fyrir eldri borgara og ýmislegt annað.

Áframhaldandi nám skólaárið 2026-2027:

Þeir nemendur sem ætla að halda áfram námi þurfa ekki að staðfesta skólavist, það gerist sjálfkrafa. Þeir sem ætla að hætta, látið kennara eða skólastjóra vita sem fyrst.