Vortónleikar tónlistarskólans verða haldnir í safnaðarheimili Sandgerðis laugardaginn 20. maí kl.10:30. Í lok tónleika verða vitnisburðir og einkunnir afhentar og skóla slitið.

Tónleikarnir taka rétt um 1.klst. og verður mikið um fjölbreytt samspilsatriði. Allir bæjarbúar eru hjartanlega velkomnir og vonumst við til að sjá sem flesta.