Vortónleikar – áframhaldandi nám o.fl.
Nú er lokaspretturinn hafinn á þessu skólaári í tónlistarskólanum. Tvennir vortónleikar skólans verða miðvikudaginn 13. maí kl.17:30 & fimmtudaginn 14. maí, uppstigningardag kl.10:30. Báðir tónleikarnir fara fram á sal Sandgerðisskóla. Í síðustu kennsluvikunni, 18.-23.maí fá nemendur afhentar einkunnir og umsagnir. Þessar síðustu vikur verður mikið æft fyrir tónleika, Garðvangur heimsóttur og leikið fyrir eldri borgara [...]









