Frettir

Afmælistónleikar barnakórsins 2.maí kl.18

2018-04-26T10:38:22+00:0026.04.2018|

Barnakórinn í Sandgerði fagnar 10 ára afmæli um þessar mundir og ætlar að fagna með vor & afmælistónleikum í safnaðarheimilinu miðvikudaginn 2.maí kl.18:00. Létt og fjölbreytt dagskrá. Afmælisterta djús og kaffi í boði að tónleikum loknum. Frítt inn og allir hjartanlega velkomnir.

Páskafrí!

2018-03-22T14:28:22+00:0021.03.2018|

Páskafrí verður í tónlistarskólanum frá 24. mars til og með 2. apríl. Þriðjudaginn 3. apríl verður sameiginlegur starfsdagur kennara í skólanum ásamt kennurum tónlistarskólans í Garði og því fellur öll kennsla niður. Kennsla hefst aftur samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 4. apríl. Gleðilega páska!

Kaffihúsakvöld – Nemendatónleikar á bókasafni mánudag 29.jan

2018-01-24T15:02:42+00:0024.01.2018|

Bókasafnið og Tónlistarskólinn efna til Kaffihúsakvölds n.k. mánudag 29. janúar kl.18:00. Nemendur tónlistarskólans leika listir sínar á bókasafninu og boðið verður upp á kaffi og meðlæti. Allir eru hjartanlega velkomnir! Tónleikarnir standa í ca. 40 mín.

Skólanum barst höfðingleg gjöf!

2018-01-10T09:31:11+00:0010.01.2018|

Rétt fyrir áramót hafði Sandgerðingur nokkur, Hafþór Gestsson samband við skólann. Hafþór býr nú í Garðabæ en er fæddur og upp alinn í Sandgerði. Erindið var að Hafþóri langaði að gefa skólanum slagverkshljóðfæri ýmisskonar sem hann notaði ekki lengur en Hafþór lék t.a.m. með hljómsveitinni "Reggae on Ice" um árabil. Þetta er kærkomin gjöf sem [...]

Tónfundur – Nemendatónleikar 16.október kl.18:00

2017-10-12T12:23:30+00:0012.10.2017|

Mánudaginn 16.október kl.18:00 verða nemendatónleikar í stofu 4 í tónlistarskólanum. Þetta eru stuttir, óformlegir nemendatónleikar þar sem nemendur skólans leika listir sínar. Að sjálfsögðu eru allir bæjarbúar hjartanlega velkomnir og hvattir til að mæta.

Go to Top